Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
mán. 5.5.2008
Af hverju er nafnið á Kaupþingi
Drake lokar vogunarsjóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 3.5.2008
Þvílíkur léttir...
Bjóða rýmri lánalínur í Bandaríkjadölum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 17.3.2008
Rokkum aðeins upp daginn.
Hlutabréf lækkuðu mikið í verði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 1.3.2008
Burt með verðtryggingu á lánum.
Þegar stjórnendur bankanna eru farnir að tala svona þá er eitthvað mikið í gangi. Ég held að það ætti að taka verðtryggingu á lánum af áður en svona vitleysa verði framkvæmd. Það er ekki mönnum bjóðandi eða sæmandi að keyra málin svona áfram. Sigurður Einarsson vil að Seðlabankinn hendi verðbólgumarkmiðunum á haugana bönkunum til bjargar. Hvað kostar það okkur sem skuldum og allt verðtryggt?
Mér finnst þetta ekkert flókið, stjórnendur bankanna taki einfaldlega ábyrgð á því brjálæði sem þeir hafa stundað. Fyrir það hafa þeir fengið ofurlaun og þykir alveg sjálfsagt að taka við þeim. Þá þykir mér einnig sjálfsagt að þeir taki ábyrgð á eigin gerðum. Það píndi þá enginn til að haga sér svona. Við þessir meðaljónar eigum ekki að borga þá úr snörunni.
Úr fréttinni Einhvern tímann var jú sagt: Ef þú ert kominn ofan í holu, hættu þá að moka," sagði Sigurður. Þar hitti Sigurður sjálfan sig beint í rassgatið og ætti þessi setning ekki best við hann sjálfan? Fréttina er svo hægt að lesa í heild hérna.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
lau. 1.3.2008
Þarf hjartastuðtæki á Wall Street ?
Hrun á Wall Street
"Hlutabréf í kauphöllinni á Wall Street hrundu í dag. Helsta skýringin eru fréttir af mettapi AIG tryggingafélagsins og sá viðvarandi ótti um meiri samdrátt í efnahagslífinu. Dow Jones vísitalan lækkaði um 2,51%. Standard & Poor lækkaði um 2,7% og Nasdaq lækkaði um 2,58%."
Hver veit nema þeir þarna vestan hafs hafi not fyrir hjartastuðtækin eftir útreið dagsins, miða við myndina sýnist mér ekki vera vanþörf á græjunni.
fös. 29.2.2008
Óþarfar og villandi fréttir ?
Olíuverð yfir 103 dali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 26.2.2008
Ríkasta þjóð heims.
Hvernig svo sem hægt er að tala um það hvað við erum vel sett, skulda heimilin ekki nema 867 milljarða. Og einhverjir blábjánar segja, við erum ríkust allra, við erum hamingjusömust allra, hér er engin spilling í pólitík, stöðugleikinn er frábær, arðsemi af nánast öllu sem við tökum okkur fyrir hendur, vísindaheimurinn óskeikull, bankakerfið stendur ekkert svo illa, hrunið í kauphöllinni er smotterí, sjávarútvegurinn frábær og stjórn hans sú besta í heimi.
Samt er staðan þessi, fasteignamarkaðurinn hálf frosinn, verðbólgan á uppleið, verð á orkugjöfum á sér fáar hliðstæður, bankarnir í tilvistarkreppu, vextir hvergi hærri, skuldir per mann eiga sér fáar hliðstæður, vísindaheimurinn á rassgatinu í eigin dellu, stjórn fiskveiða arfavitlaus, fjöldi fólks undir fátæktarmörkum glæsilega hár, vonleysi vaxandi áhyggjuefni, launamunur vaxandi, mannréttindi fótumtroðin, pólitískir bitlingar í öllum hornum, arðsemin góða fokin til helvítis, spákaupmennskan gjaldþrota og fiskistofnarnir ofveiddir að mati vitringanna.
Hver er svo að kvarta, hér er best að búa?
Heimilin skulda 867 milljarða í bankakerfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 12.2.2008
Tæknilega séð er allt í fínu lagi.
En hver skyldi vera raunveruleg staða? Hvað þýðir það að tæknilega sé eigið fé ekki uppurið? Er eitthvað tæknilegt til í þessu brjálæði? Er það ekki viðtekin venja í öllum svona hlutum að raunverulega sé eitthvað sem er áþreifanlegt og tengist raunveruleikanum. Tæknilegt er eitthvað sem líkja má við aðferðarfræði sem soðin er saman í Excel og gengur hreint ekki upp í 95% tilvika.
Til dæmis þegar bankabókin mín er tóm er ekkert tæknilegt við það. Hún er einfaldlega tóm í raunveruleikanum og vonlaust er fyrir mig að reyna tæknilega að auka innistæðu reikningsins þótt kápan á bókinni sé úr gulli. Hvaða andskotans kjaftæði er þetta?
Segir umfjöllun Børsen bera vott um æsifréttamennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 6.2.2008
Nota átti Orkuveituna til að bjarga...
REI skýrslan áfellisdómur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fim. 10.1.2008
Hver lýgur hverju og hver segir satt?
Erum við ekki rétt að byrja að sjá hverjar afleiðingarnar af spákaupmennskubrjálæðinu eru? Hvaða akk hefur Saga Capital af því að eignast fyrirtæki Daggar sem á ekki neitt nema handónýt A4 blöð? Er eitthvað til í því sem Dögg Pálsdóttir segir að beitt hafi verið blekkingum og Spron logið upp um helming frá áðurfengnu mati Capacent? Sjá HÉR
Það er góð spurning hver lýgur hverju og hver segir satt, ekki satt?