Færsluflokkur: Bloggar

Eins og Eiður Smári hefði breytt

einhverju í þessum leik. Ég er ekki svo viss um það, því miður fær hann ekkert að spila og hlýtur þess vegna að vera í frekar lélegri leikæfingu.
mbl.is Tomasson skellti Börsungum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað....

eigum við bara að láta hann éta okkur út á gaddinn? Hvernig væri að stjórnvöld stæðu í lappirnar og leyfðuHvalur nánast ólimpískar veiðar á þessum andsk..... skepnum. Það er hægt að gera allan fjandann við þetta kjöt, svo sem hakka kvikindin í hamborgara, gefa kjötið til fátækra og bágstaddra, framleiða refafóður úr skepnunni, framleiða lýsi, nú eða hreinlega láta slatta af skepnunum sökkva til botns, þar nýtist hann öðrum sem fæða. Margt annað mætti telja upp en látum staðarnumið hér.

Um hvað er ég að skrifa, það má lesa um það hér. 


Góðærið ekki meira virði..

en ómerkilegur kaffibrúsi. Eru menn loksins að vaka upp og átta sig á því, að þetta svo kallaða góðæriGóðærið var eftir allt saman upplogið brjálæði spákaupmanna í galtómum jakkafötum, og ríkisstjórnin hoppar með? Hvernig voru vildarvinir hjá Glitni banka meðhöndlaðir fyrir ári síðan? Hátt er fallið og eðlilegt að sumir séu súrir með rýra viðurkenningu.
mbl.is Jólagjöf Glitnis of rauð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kiss of death.

Guðni FlotturMargt skýtur upp í huga mínum við að horfa á endursýningu á þættinum Kryddsíld á Stöð 2. Guðni Ágústsson lýsti því yfir að hann yrði pottþétt í þættinum að ári, einnig sagði hann að það væri öruggt að hann myndi leiða Framsóknarflokkinn fram til afgerandi kosningasigurs í næstu kosningum.Shocking Guðni öruggur með sig, en að mér læðist sú hugsun að karlinn sé alvarlega veruleikafyrrtur.SmileHalldór Ásgrímsson

Mér datt til dæmis í hug kiss of death sem Halldór fyrrverandi formaður flokksins afgreiddi svo faglega um árið. Það er þegar hann faðmaði Arafat og kyssti, Arafat eins og flestir vita lifði það alls ekki af.LoL Eru kossar formanna Framsóknar virkilega svona eitraðir? Ef svo er þá þarf Guðni að kyssa helv... marga ef hann ætlar að ná tilsettum markmiðum.GrinGrinGrin


Áramótakveðja

Ég óska bloggvinum mínum Gleðilegs nýs árs. 

Takk fyrir skemmtileg bloggkynni á árinu sem er að líða.

Megi nýja árið færa ykkur gæfu og gleði


Lausnin fundin fyrir Rétttrúnaðarkirkjuna !!!!

Ég skora á presta Rétttrúnaðarkirkjunnar að setja sig í samband við Náttúran.is þar á bæ ku vera hverÞrif snillingurinn á fætur öðrum í þrifum. Þeim skortir ekki hugmyndaflugið þar á bæ, svo framarlega sem þeir þurfa ekki að gera handtak sjálfir hef ég heyrt...Wink
mbl.is Slegist í fæðingarkirkju frelsarans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki bara málið að.....

draga þessar umhverfissinnuðu pokarottur út fylgsnum sínum og þær látnar sína gott fordæmi fyrirFlugeldar umhverfisbaráttu sinni með duglegri hreinsun landsins eftir áramótin. Það verður ekki upp á þetta lið logið. Síðan mætti halda að það séu bara björgunarsveitirnar sem selja flugelda, hvað með íþróttafélögin,bílasölur og einstaklinga sem sjá ekkert annað gróðavon með sölunni? Þar fyrir utan erum við sem notum þetta dót ekkert of góð til að hreinsa upp eftir okkur sjálf. En miða við hræsnina sem lesa má út úr fréttinni er ég alveg tilbúinn að taka að mér svo sem eins og eina umhverfisrottu og leiðbeina kvikindinu við góða hreinsun...Devil
mbl.is Skorað á björgunarsveitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólakveðja

Gif santa claus Images 

Mig langar að óska bloggvinum mínum og lesendum síðunnar

sem og landsmönnum öllum 

Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

Með þökk fyrir góða viðkynningu

á árinu sem er að líða. 

MySpace GraphicsMySpace Graphics

Nauthólfsvík stolið og er hana að...

finna við Jökulsá á fjöllum....Whistling Sólbaðsströnd
mbl.is Baðströnd stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta eitthvað nýtt?

Gamla góða minnið fokið út í veður og vind, það er eins og aldrei hafi blásið áður á Íslandi eða við landið. Hvernig var Desember í fyrra? Þá blés og blés með tilheyrandi ósköpum allt á floti bæði í Flóanum og á Akureyri. Aurskriður féllu hér og þar. Mörg undanfarin ár hafa djúpar lægðir gengið yfir. Hver man ekki eftir því þegar Hótelið í Freysnesi fauk upp af grunninum og stórskemmdist, malbik rifnaði upp og fauk af þjóðveginum í Öræfum á löngum köflum, einbýlishús sprakk út á stöfnunum í Vestmannaeyjum. Það er hægt að telja svona í marga daga.

Hvað hefur breyst? Nákvæmlega ekki neitt annað en það að fólk og verktakar eru margfalt kærulausari í dag, og ganga einfaldlega ekki eins vel frá hlutunum  og gert var hér áður. Það er eins og það treysti allir því að það komi ekkert fyrir hjá sér bara hjá nágrannanum.  Nú svo þegar allt er komið í dellu og á góðri leið til helvítis, koma hetjurnar okkar ( björgunarsveitirnar ) og bjarga skussunum sem skilja við hlutina eins og um sumarblíðu sé að ræða. Við búum á Íslandi, landi vinda, elda og ísa og það er allt í boði þegar veðrið á í hlut, það er ekkert nýtt.

Er það nokkuð svo flókið að skilja það í raun, í það minnsta stendur ekkert á landanum að monta sig af því blindfullir og uppá þrengjandi í flugvélum ýmist á leið til eða frá landinu, hvað veðrið getur nú orðið svakalegt, sko æm gonna telljú annað eins þekkist ekki á byggðu bóli, svo ekki sé talað um stórkalla montið á börunum á erlendri grund...Shocking


mbl.is Dýpri lægð á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband