þri. 25.8.2009
Konur hafa vísindalega rangt fyrir sér !!!!!
Bísperrtar og að rifna úr monti eins og hrokkið hafi ofan í þær kústskaft berja þær sér svo duglega á brjóst að þeim dauðverkjar í mjólkurbúin yfir yfirburðum sínum í veröld Homo Sapiens....
Nú er þetta á hreinu fyrir fullt og allt, við strákarnir sem svo sannarlega gerum bara eitt í einu og gerum það vel erum toppurinn í keðjunni....
Vaðandi eins og marghausa hæna úr einu í annað eins og þessi hávísindalega rannsókn sýnir er þá sönnun sem ekki verður þrætt um, ávísun á hroðalegt skipulagsleysi og óvönduð vinnubrögð....
Góðar stundir.
![]() |
Betra að sinna einu en mörgu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:56 | Facebook
Athugasemdir
Það eru nú ekki allir strákar sem gera það gott... sbr. strákarnir í Liverpool...
Brattur, 25.8.2009 kl. 21:12
He he he góður Hallgrímur. Þetta er kjörið tilefni til að setja hér inn hjá þér ódauðlegt 100 ára ljóð sem tengist þessu málefni. Því miður veit ég ekki hver samdi.
Nokkur heiðurshænsni
í hænsnakofanum búa,
og haninn er þeirra höfuð
og hænurnar á hann trúa.
Þau lifðu í eining andans
og eftir hænsnavenjum,
uns hæna ein tók upp á
svo undarlegum kenjum.
Að hoppa upp á hauginn
er hennar fasti vani,
reigja sig og rembast
og reyna að vera hani.
Haninn bölvar í hljóði.
En hvað er um það að tala,
þótt hænuréttinda hæna
heimti að fá að gala.
Verði þér að góðu.
Karl Löve, 25.8.2009 kl. 21:38
Gísli, þetta komment hjá þér er gróf móðgun við marghausa hænurnar sem færslan er um...
Að blanda svona göfugu málefni við nokkra klaufa frá Liverpool er í besta falli niðrandi fyrir veikari kyn Homo Sapiens....
Góður Karl, þú leynir á þér........
Það skal tekið sérstaklega fram að ég ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð á kommentum á þessari síðu....
Ég ber fyrir mig hroðalegu kunnáttuleysi á þetta bloggkerfi og kann ekki að fjarlægja áviðeigandi komment.....
Hallgrímur Guðmundsson, 25.8.2009 kl. 21:51
Svo er líka niðrandi fyrir hænur að talað sem um Liverpool í sömu andrá og þær. Menn verða að kunna sig.
Víðir Benediktsson, 25.8.2009 kl. 22:30
Já segðu Víðir, Gísli er gjörsamlega út í haga..........
Þar fyrir utan þá minnir þú svolítið á veislustjórann sem heldur uppi partíinu á myndbandinu í nýrri færslu á síðunni, svolítið þvoglumæltur.......
Hallgrímur Guðmundsson, 25.8.2009 kl. 22:55
Ætli það c til KFC í livrarzollinum núna, eða þarf mar að renna yfir til Birmíngham ?
Góður kviðlíngur, Karl Löve..
Steingrímur Helgason, 25.8.2009 kl. 23:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.