Ég trúi þessu ekki

steven_gerrard_fyrirli_i_liverpool.jpgHver þvingaði letingjann til að halda þessari þvælu fram....Wink

Þeir sem eru lengra komnir vita hvernig liggur í þessu.

Það er bara einn og ég meina það bara einn sem er bestur...

Sjá mynd til hægri....Cool

Góðar stundir.


mbl.is Berbatov: Rooney betri en Ronaldo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

í fyrsta lagi að kalla Berbatov letingja er það heimskulegasta sem að ég hef heyrt og sýnir bara fávísu þína á fótbolta,maðurinn hleygpur að meðaltali 300 metrum meira en til dæmis tevez í leik.og að kalla gerrard bestan maðurinn hefur ekki einu sinni unnið ensku deildina sem er lágmark fyrir mann sem er "bestur" að allvega vinna deildina,eða það að hann er í svona lélegu liði að hann getur ekki unnið neitt 

þetta er án efa heimskulegasta og tilgangslausasta blogg sem að ég hef séð 

jon (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 11:50

2 identicon

Ég er alveg sammála Berbatov, Rooney er betri en Ronaldo, aðal munurinn liggur samt í hrokanum sem ,,hr. ég-er-Ronaldo-og-ég-er-bestur-og-má-allt" hefur til að bera.

Það er mikið skemmtilegra að horfa á Rooney og Berbatov spila en marga aðra leikmenn...

-þessu getur verið erfitt að kingja, sérstaklega þegar þetta kemur frá Liverpoolmanneskju, sem ég er, en Rooney og Berbatov væru fullkomnir í mitt draumalið! - Auk Liverpoolmannanna að sjálfsögðu! :-)

Jón: Gerrard í eigin persónu á ekki að vinna neitt, nema hann fari þá út í frjálsar íþr. þar sem ekki er keppt í liðum. Þarna kemur akkúrat fram M.utd. andinn: einu sinni var Beckham liðið, svo var það Ronaldo. Það er alltaf bara 1 sem vinnur, þegar liðið vinnur. Ekki heildin. Frjálsar íþr. myndu kannski henta Ronaldo vel, þar sem þá snýst allt um hann einann, ekkert lið sem að truflar hann...

Svona sé ég Þetta allavega :) þetta verður góður vetur í boltanum!

Dagný (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 12:11

3 identicon

Rólegir drengir. Ég er United maður og verð að viðurkenna að vinnusemi Berbatov mætti oft vera meiri. En hann skipuleggur hlaup sín vel, er afar sterkur á boltanum og mjög teknískur. Hans akkílesarhæll er hraðinn - sem er því miður of lítill.

En varðandi Rooney og Ronaldo. Ég er á því að Ronaldo sé betri knattspyrnumaður; teknískari, fljótari, betri skallamaður og meiri markaskorari. En það eru fáir leikmenn jafn mikilvægir fyrir lið sín og Rooney er fyrir United. Hugsanlega Gerrard fyrir Liverpool þó sem kemst þó ekki með tærnar þar sem Rooney hefur hælana.

Einar (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 12:19

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Jón ertu til í alvöru????

Heimskulegt, já það er eitt heimskulegt við þetta allt saman. Að þú skulir vera að kommenta á þessa vísindalegu og vel unnu fræðigrein.........

Sammála Einar, haugurinn mætti alveg vera vinnusamari.....

Hallgrímur Guðmundsson, 23.8.2009 kl. 12:54

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Já Berbi mætti vinna meira, allavega ef miðað er við hvað hann kostaði og á hvaða launum hann er, en það er rétt hjá honum að Rooney er lang bestur, allavega í knattspyrnu. Gerrard er hins vegar betri í að berja saklaust fólk og bera við sjálfsvörn þó þeir séu fimm á móti einum. Það er list út af fyrir sig og ég ætla ekki að gera lítið úr því en þessi DJ boxari getur ekki rassgat í fótbolta.

Víðir Benediktsson, 23.8.2009 kl. 13:57

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Áfram Arsenla.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.8.2009 kl. 13:59

7 Smámynd: Ólafur Tryggvason

Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met, Nýtt met...

Þrjár fótboltafærslur í röð sem allar fjalla um stórlið MUFC!!! enda mikið merkilegri og sigursælli klúppur og skiljanlega hefur Hallgrímur meiri áhuga MUFC

Ólafur Tryggvason, 23.8.2009 kl. 16:58

8 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Óli, ég er hógværðin uppmáluð eins og þú veist....

Að slá sér upp til riddara á sigrum Liverpool, er frekar boring dæmi sjáðu til. Þeir eru svo margir að það er nákvæmlega ekkert merkilegt...

Eins og ég hef áður sagt, ég tek fyrir töp og jafntefli Púllara að hætti hússins með mínu nefi....

Um aðra verður skrifað frjálst og óháð, hvert smáatriði sem glatt getur ykkar geggjuðu kolla mun fá veglega og verðskuldaða meðferð á þessari síðu....

Samt alltaf gott að vita af þér á lífi Óli minn og með puttana sæmilega liðuga....

Víðir, láttu renna af þér áður en þú ferð að reyna að vera gáfulegur....

Hallgrímur Guðmundsson, 23.8.2009 kl. 20:30

9 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það verður aldrei hægt að skrifa neitt gáfulegt, hvorki um Gerrard eða Liverpool hvort sem maður er fullur eða edrú. Óþarfi að láta renna af sér þess vegna.

Víðir Benediktsson, 23.8.2009 kl. 20:50

10 Smámynd: Ragnar Martens

Aftur hafið þið púlarar áhyggjur af okkar mönnum. Takk fyrir það.

Ragnar Martens, 24.8.2009 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband