lau. 10.1.2009
Hvítþvegnir englar á kafi í ruglinu
Auðvitað gerðu þeir ekkert rangt, ekki veit ég hvernig nokkrum getur dottið annað til hugar en að Bakkabræður voru strangheiðarlegir hálfvitar.
Frægast er þegar þeir eyddu ómældum tíma í að bera dagsbirtuna inn í kofaskriflið sem þeir bjuggu í. Ef við skoðum restina af yfirlýsingunni frá Exista þá gæti manni dottið til hugar mikill skyldleiki á milli þessara bræðra sem allir eru kenndir við Bakka. Skoðum málið nánar, hér fyrir neðan er úrdráttur úr yfirlýsingunni.
"Exista hefur átt í viðræðum við íslensku bankana meðal annars vegna uppgjörs varnasamninga og er enginn ágreiningur um réttmæti þessara samninga eða að til þeirra hafi verið stofnað á eðlilegum rekstrarlegum forsendum."
Góðar stundir.
Exista stundaði ekki spákaupmennsku" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er djúpt á nokkru, sem heitir raunveruleikaskyn hjá sumum.
Jóhann Elíasson, 10.1.2009 kl. 18:07
Ætli þeir séu hættir að nota þyrlu til að skjótast í sjoppu til að kaupa sér pylsu í laxveiðitúrunum?
Víðir Benediktsson, 10.1.2009 kl. 18:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.