Hinn eini sanni stóri sannleikur

kemur undantekningarlaust frá þessum samtökum. Hverslags andskotans fábjánar eru þetta hjá Samtökum atvinnulífsins að átta sig ekki á því að hjá Líú eru starfandi vel gefnir og vandaðir guðir hugmyndanna sem undantekningarlaust eru þeir einu sönnu og réttu fyrir þjóðina og áframhaldandi velmegun í landinu.

Á ósnyrtu tungumáli leggst þetta þá þannig út að Hrund er vanhugsandi blábjáni sem ekkert vit hefur á viðfangsefninu. Friðrik J. og hans hirð eru hins vegar ósnertanlegir guðir rétthyggjunnar með yfirburðar þekkingu á því sem er þjóðinni fyrir bestu.

Að fólk skuli ekki vera farin að átta sig á þessu er furðulegt, það hefur reynst okkur svo einstaklega vel og þá sérstaklega sjávarþorpunum að hafa rétthugsandi samtök á borð við Líú í forustu fyrir almannheill og traustri atvinnu landsbyggðarinnar.

Við megum sem sagt þakka almættinu fyrir Líú, hvar værum við stödd ef við hefðum ekki þessi rétthugsandi samtök með Friðrik J. yfir boðorðapostula í fararbroddi? 

Góðar stundir.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband