mán. 24.11.2008
Einhleypir iðki sjálfsfróun daglega og stundi óhóflegt át
á súkkulaðikökum, það endar bara illa þetta fjandans kökuát. Þessi predikari Ed Young er gjörsamlega vonlaus og hefur ekki nokkra innsýn í hið hefðbundna líf og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig a eyrinni. Hver á að sjá um að dúndra þær giftu sem búnar eru að reka karlinn sinn út í rafmagnslausan bílskúr eða í versta falli gaslaust fellihýsi, það segir sig sjálft að þær hanga hjólgraðar aleinar upp í rúmi og dauðsjá eftir öllu saman.
það gefur augaleið að þeir einhleypu eru tilvaldir í djobbið enda sáttasemjarinn á ískaldri karltuskunni í rafmagnslausum bílskúrnum (gaslausu fellihýsinu) minni en dyrabjölluhnappur og ónothæfur í hverskonar gleðskap með spendýri af gagnstæðu kyni.
Nú ráðið þið því alveg sjálf hvort þið lítið svo á að ég sitji helkaldur út í gaslausu fellihýsi með fartölvuna á hnjánum nýbúinn að hakka mig inn á netið hjá nágrannanum, með pínulítinn sáttasemjara á milli lappanna kvartandi við umheiminn á netinu yfir hroðalegri meðferð eða ekki og frúin hjólg... upp í rúmi og dauðsjái eftir öllu saman.
Það er slökkt í helvítis herberginu þannig að hún er í það minnsta ekki að róta í dótakassanum, þar sem herbergið er á annarri hæð og ég á engan stiga þá get ég ekki með nokkru móti sé hvort einhver einhleypur heilaþveginn sértrúartittur sé kominn í heimsókn....
Góða nótt, burrrrr
Góðar stundir.
Stundið meira kynlíf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.11.2008 kl. 07:07 | Facebook
Athugasemdir
Þú bara áttar þig ekki á því að þú ert ofan í dótakassanum að pikka á lappann sem er að verða batteríislaus.
Sverrir Einarsson, 25.11.2008 kl. 10:11
Hann varð batteríslaus því ekkert kom svarið. Nema að konan hafi séð svo eftir öllu að hún hafi sótt hann, sett hann undir heita sturtu og fengið sér sæti.
Villi Asgeirsson, 25.11.2008 kl. 13:41
Humm ég ætla ekkert að trufla núna Halli minn En takk fyrir síðast
Erna, 25.11.2008 kl. 14:01
Nóg rafmagn hér og ég er bara svona helvíti góður.
Takk sömuleiðis Erna.
Hallgrímur Guðmundsson, 25.11.2008 kl. 16:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.