sun. 16.11.2008
Beðið á hliðarlínunni eftir skömmtunarmiðanum
á meðan þessi hér tjáir sig opinn ofan í rassgat eins og venjulega. Það fylgir kannski með skömmtunarmiðanum ræða sem fellur í vel inn í hítina Döpur er viðspyrna minna manna og hvað kemur næst? Afsláttur á helsta baráttumáli flokksins sem er afnám kvótakerfisins og ómannúðleg mannréttindabrot á sjómönnum og íbúum sjávarþorpanna.
Afsláttur á baráttunni fyrir þeirri rányrkju sem stunduð er á landsbyggðinni í samþjöppun kvóta til örfárra útvalda og byggðirnar lagðar í eyði. Af hverju myndi mér ekki bregða ef maður læsi það einn daginn í fjölmiðlum að þeir sem á sínum tíma yfirgáfu flokka sína drulluspældir þegar þeir voru færðir niður listann eftir prófkjör væru komnir heim í gamla flokkinn sinn.
Ég er steinhættur að skilja hvað er í gangi og hvernig menn spila úr þeim sóknartækifærum sem skapast hafa. Steinsofandi skal rekið að feigðarósi og þegar ísköld gusan skellur í andliti svefnenglanna er það því miður allt of seint að bjarga sökkvandi fleka. Ég verð að nota fleka í samanburðinn þar sem orðið skip á það ekki skilið að vera bendlað við svona dugleysi.
Góðar stundir.
Veit ekki hvað í þessu felst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:36 | Facebook
Athugasemdir
Þetta lið væri kjöldregið um borð í alvöruskipi.
Víðir Benediktsson, 16.11.2008 kl. 22:39
Heilir og sælir; Hallgrímur og Víðir, sem karskir piltar og stúlkur !
Heyr; fyrir ykkur báðum, ágætu drengir !
Með beztu kveðjum, sem baráttuhug eindregnum /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.