fim. 6.11.2008
Verkalýðsforustan er ekki fyrir verkafólk
Það undirstrikar Gunnar Páll duglega með gjörðum sínum. Verkalýðsforustan hefur fyrir löngu síðan steingleymt hlutverki sínu og lætur það yfir sig ganga að lámarkslaun á Íslandi séu undir hungurmörkum.
Eina sem gæti komið verkalýðsforustunni aftur inn í raunveruleika almennings er að þeir sæti sömu kjörum og lægstu launataxtar umbjóðendur þeirra segja til um. Hvað réttlætir það að þessi forusta skuli vera stríðalin á velmegunarlaunum þegar þeir standa sig ekki betur og verða síðan uppvísir að svona gjörningum eins og Gunnar Páll.
Ég leyfi mér að efast um heilindi þessara manna/kvenna þegar kemur að kjarasamningum fyrir almúgann sem þeir eiga greinilega ekki í neinum vandræðum með að taka í ósmurðan afturendann í skjóli myrkurs og reykfylltum bakherbergjum í þágu græðgi auðvaldsins.
Árangurstengja launin hjá verkalýðsforustunni og þeir eiga aldrei að hafa meira en þeir lægst launuðu, það er krafa dagsins í dag.
Er hægt að kalla Gunnar Pál þjóf í þágu gráðugra auðmanna? Ef svarið er á einhvern hátt jákvætt þá á að reka hann samstundis úr öllum ábyrgðarstöðum og störfum hjá VR.
Góðar stundir.
Nýtur trausts stjórnar VR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:39 | Facebook
Athugasemdir
Þú sagðir allt sem mig langaði að segja. Gæti ekki verið meira sammála!
Hugarfluga, 6.11.2008 kl. 08:44
Ef að trúnaðaráðið hjá VR lýsi ekki yfir vantrausti yfir formanninn og allri stjórninni og sparki þeim, þá legg ég til við alla félaga í VR að segja sig úr félaginu. Þar sem þá sést að VR eru ekki að hugsa um sína félaga.
Mummi Guð, 6.11.2008 kl. 12:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.