sun. 12.10.2008
Þetta hlýtur að vera grín
Hvernig dettur mönnum til hugar að sleppa dýralækninum án eftirlits úr landi? Þetta getur ekki leitt til neins annars en áframhaldandi hörmunga fyrir Ísland...
Árni Matta að funda stíft á ensku, hann sem gat ekki einu sinni afgreitt eitt einfalt símtal áfallalaust án misskilnings við breskan kolleka sinn... Ég geri einfaldlega ráð fyrir því að sá breski sé betri í ensku en dýralæknirinn og hafi skilið fullkomlega ruglið sem dundi yfir hann í símanum...
Nú situr snillingurinn Árni Matt og fundar um framtíð þjóðarinnar á ensku, guð hjálpi okkur ef við eigum ekki skárri kost...
Verið góð við hvert annað.
Góðar stundir.
Fundað stíft með IMF | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já þetta er grín!
Við erum vonandi bara að skoða hvað þeir hafa að bjóða, svo er hinn möguleikinn að þeir séu að reyna að láta líta út fyrir að þeir geti hjálpað en við afþakkað svo hægt sé að níða af okkur skóinn fyrir að þyggja lán af rússum
Sævar Finnbogason, 12.10.2008 kl. 23:46
Það er líka spurning hversu vel hinir skilja skoska hreiminn?
Vonandi verð þeir bara með túlk
Anna Guðný , 13.10.2008 kl. 00:00
Því miður er þetta alls ekkert grín. Allavega finnst mér þetta ekki fyndið.
Víðir Benediktsson, 13.10.2008 kl. 00:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.