þri. 2.9.2008
Til hvers þarf að taka lán?
Hér er orðrétt haft eftir Geir á visir.is "Íslendingar hafa aldrei verið eins vel í stakk búin til að standast ágjöf í efnahagslífinu, að mati Geirs. Uppgangstíminn hafi verið notaður til að greiða niður skuldir ríkissjóðs, safna í digra sjóði og skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið og um leið verðmætasköpun hér á landi.
Hvar eru þessir digru sjóðir sem safnað var í, og hvaða stoðum hefur verið skotið undir atvinnulífið? Í hvaða veröld lifir þessi maður? Hann er í það minnsta ekki í neinu sambandi við raunveruleikann á landinu sem hann gegnir starfi forsætisráðherra. Til hvers þarf að taka lán fyrst það er búið að safna svona myndalega í digra sjóði?
Góðar stundir.
30 milljarða króna lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.