mið. 2.7.2008
Prófessor Robert Wade hefði
mátt láta fylgja með í þessari grein sinni sannleikann um kvótakerfið og hvernig bankarnir tóku þátt í því að sprengja upp verðið á aflaheimildum.
Annars veltur sú spurning oft um kollinn á mér hvort það sé ekki kominn tími á að draga þá til ábyrgðar sem tóku þá ákvörðun að leyfa frjálst framsal, sölu og veðsetningu á hlutum sem þeir eiga ekkert í. Að vísu má segja að þeir sem stunda sölu á aflaheimildum eiga eitthvað í aflaheimildunum, en sannleikurinn er sá að þeir eiga bara ekkert meira en ég og þú í þessum aflaheimildum.
Fiskurinn í sjónum er jú sameign þjóðarinnar og kemur það skýrt fram í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Þessu mætti líkja við að þeir sem sitja á og stunda búskap á til dæmis ríkisjörðum og hafa af þeim afnotarétt tækju sig til og veðsettu eða seldu allt heila draslið. Einhversstaðar myndi hvína í trúi ég.
Góðar stundir.
Rót vandans einkavæðing íslensku bankanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.