lau. 21.6.2008
Spurning um ábyrgð
eiganda rollunnar. Lausaganga búfjár er með öllu ólögleg og bönnuð á þjóðvegum landsins og ættu eigendur búfé sem veldur tjóni og slysum að vera ábyrgir fyrir þessum tjónum.
Það er samt mest um vert þarna að allir sluppu með skrekkinn, það er ekki alltaf svo.
Tvær bílveltur fyrir rollu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Efni
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 3484
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Veður og sjólag
- Belgingur
- Bracknell veðurkort
- Sjávarföllin á Íslandi
- Fiskmarkaðir
- Rafröst Akureyri
- Blogg gáttin
Áhugaverðar síður
Bloggvinir
- Huld S. Ringsted
- Arna Rut Sveinsdóttir
- Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi
- Víðir Benediktsson
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Sigurjón Þórðarson
- Ásta Hafberg S.
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Eiríkur Guðmundsson
- Grétar Rögnvarsson
- Götusmiðjan
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Gísli Guðjón Ólafsson
- Jón Kjartansson SU-111
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Þorleifur Ágústsson
- Mummi Guð
- Reynir Elís Þorvaldsson
- Sverrir Einarsson
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Ólafur Tryggvason
- Jón Kristjánsson
- Rannveig H
- Davíð Þorvaldur Magnússon
- Þórbergur Torfason
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Grétar Mar Jónsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
- Jóhannes Ragnarsson
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Hólmdís Hjartardóttir
- gudni.is
- Jón Snæbjörnsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Öll lífsins gæði?
- Albert Þór Jónsson
- Guðbjörn Jónsson
- Sigurður Þórðarson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Brattur
- Jónas Jónasson
- Ársæll Níelsson
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Birgir Örn Hauksson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Einar Vignir Einarsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- mannréttindabrot
- Vefritid
- Púkinn
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ólafur Þórðarson
- Guðjón Ingólfsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gísli Birgir Ómarsson
- Himmalingur
- Tryggvi Helgason
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Byggir
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- viddi
- Óskar Helgi Helgason
- Ólafía Herborg Jóhannsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Steingrímur Helgason
- S. Lúther Gestsson
- Samtök Fullveldissinna
- S. Einar Sigurðsson
- Hjalti Sigurðarson
Athugasemdir
Hvað með rútubílstjórann! Á ekki að hafa næga vegalengd á milli bíla svo hægt sé að stöðva bifreið án þess að aka aftan á aðra?
Sigrún (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 19:58
Það réttlætir samt ekki búfénað á þjóðvegum landsins. Það á að láta bóndan bera ábyrgð á öllum kostnaði sem hlýst af svona löguðu. Þá myndu bændur passa þetta. Reyndar eru þetta yfirleitt sömu bændurnir sem hugsa ekki um girðingarnar og virðist vera alveg sama um dýrin sín.
Ómar Már (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 20:13
Kannski var bílstjórinn líka farastjórinn og var þá kannski að blaðra um hvað Ísland væri æðislegt.........bara kannski.
Guðmundur (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 20:38
Ábyrgðin hvílir alfarið á rútubílstjóranum, hvorki á rollunni, eiganda hennar né útlendingunum. Hvað ef fólksbíllinn hefði bara bilað og engin rolla verið á veginum? Ætti þá bílaleigan sem á bíl útlendingana að bera ábyrgðina eða kannski viðkomandi bílaumboð? Nei, þarna er rútubílstjórinn sá seki, hann hefur ekki ekið eftir aðstæðum eins og honum ber!
corvus corax, 21.6.2008 kl. 21:18
Hver gerði hvað og hver keyrði á hvern? Eitthvað gengur mér illa að réttlæta stöðu rollunnar á veginum. Ef til dæmis smábíllinn hefði straujað yfir kvikindið þá hefði bóndinn orðið geðsjúkur og heimtað bætur sem hann á í raun engan rétt á þar sem rollan er ólöglega staðsett og ferðamennirnir setið uppi með skaðann á bílnum.
Því miður er þetta allt of algengt og fólk situr uppi með skaðann, lög eru lög og þeim ber að fylgja ekki satt? Ekki ætla ég að afsaka rútubílstjórann en þarna átti rollan alls ekki að vera.
Hallgrímur Guðmundsson, 21.6.2008 kl. 21:31
Þetta er hálf kindarlegt.
Víðir Benediktsson, 21.6.2008 kl. 22:15
Hvernig væri að kynna sér reglurnar
Vegagerðin ræðst í gegnum lönd bænda án þess að girða eða borga sómasamlegar bætur fyrir eignarlönd
hvernig þætti ykkur að fá þjóðveg í gegnum lóðina hjá ykkur
Steinunn (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 22:26
Hvað hefur það með staðsetningu rollunnar að gera? Hver ber ábyrgð á rollunni bóndinn eða vegagerðin? Ef reglurnar eru öðruvísi mættir þú Steinunn gjarnan fræða okkur um þær.
Það er bara af hinu góða að fræðast ekki satt?
Hallgrímur Guðmundsson, 21.6.2008 kl. 22:38
Ég veit ekki hvor er meira fífl, bóndinn sem lætur sauðheimskar rollur sínar ganga frjálsar á þjóðvegum landsins eða rútubílstjórinn sem ók það hratt að hann/hún gat ekki stöðvað ferlíkið þegar bíll fyrir framan hafði stöðvað. Er ekki bara tími til kominn að hver taki ábyrgð á sínum eigin gjörðum. Ógætilegur akstur veldur slysum. Maður á ekki að aka hraðar, eða nær bílnum fyrir framan sig, en svo að maður nái að stöðva ef eitthvað kemur uppá. Sjálfum finnst mér girðingaleysið vera virðingarleysi og þegar kindur hoppa fyrir bílinn þá dettur mér ekki í hug að reyna að bremsa (og hvað þá að stöðva til að láta bóndann vita).
Jónas Einarssson (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 23:40
AMEN...
Hallgrímur Guðmundsson, 22.6.2008 kl. 00:01
Það má eiga von á búfénaði hvar og hvenær sem er, athyglin þarf að vera í topplagi. Þessi rútuökumaður var ljónheppinn að slasa engan eða drepa.
Ben (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 00:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.