fös. 16.5.2008
Nú er sérlega heppilegt
að við höfum gríðarlega öflugt, stórt og trúverðugt fjármálakerfi. Það er jú það sem átti að vega upp á móti niðurskurðinum á þorskkvótanum. Það er nokkuð öruggt að aflaverðmætið heldur áfram að lækka og ef fjármálamarkaðurinn er skoðaður í dag þá dregst aflaverðmætið enn hraðar saman með styrkingu gengisins.
Stórútgerðin er vælandi eins og stunginn grís, hvernig í ósköpunum stendur á því? Við erum jú einu sinni með besta og flottasta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi sem er svo hagkvæmt og arðsemin einstök, svo ekki sé nú talað um hvað þessi dásemd er einstaklega sjálfbær. Svona er Ísland í dag.
Góðar stundir.
Mjög dregur úr aflaverðmæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.