lau. 10.5.2008
Er ástæða til að endurskoða lög um stjórn fiskveiða?
Guðjón Ingólfsson, verkfræðingur skrifar.
Fréttablaðið, 03. Október 2006 05:00
Það fer ekki framhjá neinum sem ferðast um Ísland, og fer úr einu sjávarplássi í annað að kvótakerfið er búið að eyða því sem tilvera, menning og lífsstíll íbúana í flestum þeirra hefur í gegnum tíðina byggst á.
Efnamenn í þéttbýlinu bjóða stöðugt hærra og hærra í fiskveiðiheimildirnar sem hinar fáu fjölskildu og einyrkjaútgerðir sem enn finnast á landsbyggðinni ráða yfir. Þeim einstaklingum sem fara með forræðið yfir veiðirétti þessa litlu atvinnueininga, er á þann hátt mútað til að láta hann af hendi. Selja hann frá sínu fólki og úr sinni heimabyggð. Atvinnuréttinn sem þetta fólk, kynslóð fram af kynslóð, hefur byggt tilveru sína á. Þær veiðiheimildir sem hafa verið seldar koma aldrei aftur. Það kemur engin fjölskyldu- eða einyrkjaútgerð í stað þeirrar sem misst hefur fiskveiðiheimildir sínar og lögð hefur verið af. Af þessum sökum eru hin smærri sjávarpláss stöðugt að visna, eymdin að leggjast yfir og fólkið að flytja í burt.
Á fiskveiðiárinu á milli árana 2004 og 2005 fækkaði smábátum sem lönduðu afla um 20% og fastlega má reikna með að fækkun báta í þessum útgerðarflokki hafi orðið hlutfallslega meiri á því fiskveiðiári sem nú var að ljúka.
Fiskveiðistjórnunarkerfið hefur einnig leitt til þess að eignarhald smábáta og þær fiskveiðiheimildir sem þeir hafa, er að færast frá sjómönnunum sem á þeim starfa og á hendur efnamanna. Efnamennirnir leigja síðan fiskveiðiheimildirnar fram og til baka sín á milli. Sjámennirnir sem á bátunum vinna eru arðrændir (látnir róa á hálfu kaupi) til að fjármagna leigubraskið. Þannig eru þeir neyddir til að halda braskinu gangandi á sinn kostnað og halda uppi arðseminni af því. Þetta leiðir svo aftur til þess að söluverðmæti fiskveiðiheimildanna hækkar.
Ef einstaka sjómaður lætur í ljós óánægju sína með þessa stöðu mála við vinnuveitanda sinn fær hann jafnan hið staðlaða svar: ef þú ert óánægður með eitthvað vinur, farðu þá bara og finndu þér aðra vinnu.
Sjómenn sem róa á smábátum í dag hafa enga kjarasamninga. Þeir virðast því í svipaðri stöðu gagnvært vinnuveitendum sínum og kollegar þeirra við upphaf síðustu aldar, áður en verkaklíðshreyfingarinnar fór að njóta við. Kannski er ekki óeðlilegt að spurt sé í þessu samhengi, hver er staða verkaliðshreyfingarinnar í nútíma samfélagi? Eru áhrif hennar kannski hægt og sígandi að fjara út?
Reikna má með að margir vilji benda á að sú óheillavænlega þróun sem hér er rakin sé ásættanleg af þeirri ástæðu að hún leiði af sér aukna arðsemi sjávarútvegsins, þetta sé bara hagræðing innan greinarinnar.
Í þessu samhengi er rétt að benda á að stórútgerðir þéttbýlisins, sem búnar er að sölsa undir sig megnið af fiskveiðiheimildunum, eru ekki að skila neinum arði í merkingu þess orðs. Þrátt fyrir að orðið hafi miklar tækniframfarir í starfsemi þeirra hin síðari misseri og að þær hafi í dag yfir að ráða margfalt stærri og öflugri skipum en áður hafa sést á fiskimiðunum við strendur landsins.
Núverandi stjórnarsamstarf sjálfstæðisflokks og framsóknar hófst árið 1995. Frá því þetta stjórnarsamstarf hófst hefur jafnt og þétt fjarað undan hinum dreifðu byggðum. Fjöldi sjávarplássa sem standa við gjöful fiskimið hafa á þessu tímabili tapað nánast öllum sínum fiskveiðiheimildum.
Framsóknarflokkurinn sem fyrr á tímum gaf sig út fyrir að bera hag hinna dreifðu byggða fyrir brjósti hefur undanfarin ár snúist gegn hagsmunum þeirra og náð í þá veru dramatískum árangri. Af störfum þess ágæta flokks hin síðari misseri verður ekki annað ráðið en hagsmunagæsla í þágu fárra útvaldra, sem hafa verið að koma ár sinni betur fyrir borð, hafi ein ráðið för.
Þessi orð standa fyrir sínu, en staðan í dag er þannig að enn brýnna er að stokka þetta kerfi upp. Nú hefur til dæmis mannréttindanefnd Sameinuðu Þjóðanna dæmt kvótakerfið í ruslið og hjá uppstokkun verður ekki komist.
Góðar stundir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.