lau. 3.5.2008
United aðdáendur spruttu
fram af klósettunum með pappírinn fastan í skorunni þegar Ronaldo grísaði inn fyrsta markinu, síðan aulaðist einhver grísahundurinn til að skjóta boltanum í punginn á Ronaldo sem og svo skoraði með fermingarbróðurnum (frúin sjálfsagt ekkert hrifin af því). Svo skaut Carlos Tevez eitthvað út í loftið og grísaheppnin hélt áfram tuðran lenti í markinu. Síðan var svo komið að flottasta atriði fyrrihálfleiks þegar Dean Ashton jafnaði með einstökum hæfileikum sem margir leikmenn UTD geta lært sitt hvað af. Michael Carrick kemur síðan og rekur smiðshöggið á gísana og skorar fjórða markið. Nani rekinn útaf enda var engin sérstök ástæða fyrir UTD að vera með 11 menn á móti arfaslöku liði West Ham.
Til hamingju United aðdáendur ég held að það sé ekkert sem kemur í veg fyrir að UTD verði Englandsmeistarar.
Manchester United skrefi nær titlinum eftir 4:1 sigur á West Ham | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 13:57 | Facebook
Athugasemdir
fyndinn gaur
Þórður Helgi Þórðarson, 3.5.2008 kl. 13:53
Þakka þér fyrir það, það eru ekki alveg allir sem hafa húmor fyrir svona dellu.
Hallgrímur Guðmundsson, 3.5.2008 kl. 13:56
þetta er nú ekki alveg komið en nánast.Líklega verður M.utd meistari en þeir vinna ekki tvöfalt Chelsea er of stór hindrun fyrir þá
Davíð Þorvaldur Magnússon, 3.5.2008 kl. 14:52
Doddi rosa hress........?
Mér fannst þetta með klósettpappírinn alveg bráðfyndið.......
Reynir Elís Þorvaldsson, 4.5.2008 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.