Ákvörðunarfælni hug og dugleysi

ríkisstjórnarinnar hlýtur á endanum að koma fram hjá almenningi. Alveg er það samt merkilegt hvernigDugleysingjar Sjálfstæðisflokkurinn sleppur endalaust frá eigin skítverkum, bæði í skoðunarkönnunum og kosningum. Meðal þeirra eru tveir af umdeildustu ráðherrum ríkisstjórnarinnar svo ekki sé talað um suma þingmenn þeirra en það virðist ekkert hrófla við staurblindum aðdáendum íhaldsins. Maður er hreinlega farinn að trúa því að heilaþvottur eygi sér stað um leið og lýðurinn sem íhaldið styðja skráir sig í flokkinn. Svo virðist það einnig vera staðreynd að þeir  flokkar sem ganga til samstarfs við íhaldið skaðist undantekningarlaust við það. Óskiljanleg staðreynd í það minnsta fyrir höfund þessara síðu.
mbl.is Fylgi við Samfylkingu og ríkisstjórn minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Ég bara skil þetta ekki. En atkvæðin ganga víst í erfðir.  Ég virkilega hélt að nú mundi fylgið falla en NEI 40% þjóðarinnar vill þetta áfram. En getur það verið því fólkið sér engan annan kost?

Halla Rut , 1.5.2008 kl. 21:34

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég satt best að segja skil ekkert í þessu heldur. Að fólk sjái engan annan kost er varla skýringin kostirnir eru til staðar.

Hallgrímur Guðmundsson, 1.5.2008 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband