mið. 30.4.2008
Siv Friðleifsdóttir segir að það gangi ekki
upp að kaup og kjör hjá hópi fólks séu skert og ekkert komi til baka. Þessi frómu orð missti hún út úr sér í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag, sjá hér. Á þetta bara við um kynsystur hennar á sjúkrahúsunum mér er bara spurn? Hvað fáum við sjómenn í staðinn fyrir þær kjaraskerðingar sem við þurfum að þola með ákvarðanatöku hjá eftirlitslausri og sjálfalandi Hafrannsóknarstofnun? Hvað fá sjómen í staðinn fyrir 30% kjararýrnun sem þeir verða fyrir með þátttöku sinni í olíukaupum útgerðarinnar? Hvað fá sjómenn í staðinn fyrir að þurfa að taka þátt í flutningskostnaði útgerðarinnar fyrir fisk sem fluttur er ferskur á erlendan markað?
Áður en lengra er haldið og meira talið upp óska ég eftir svörum við þessum einföldu spurningum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.