mið. 9.4.2008
Auðvitað á að halda áfram.
Viðbrögð ráðamanna eru lýsandi fyrir það ofríki sem er við lýði á Íslandi. Að láta það út úr sér að það verði ekki hlustað á mótmæli segi allt sem segja þarf. Hvernig dettur forsætisráðherra það í hug að hunsa eigi stóran hóp mótmælenda vegna þess að það bara hentar honum núna? Hann er í vinnu hjá þessu fólki og eru það ekki frekar léleg vinnubrögð að hunsa eigi vinnuveitendur sína? Svari hver fyrir sig.
Þegar því er slegið upp að álögur á olíu og bensín á Íslandi séu með því lægsta sem þekkist gleymist margt að mínu mati. Til dæmis rekum við ekki her, vegakerfið á Íslandi er langt frá því að vera eins stórt í sniðum og viðmiðunarlöndin eru með og margir aðrir hlutir sem eru engan veginn sambærilegir. Hvað er það til dæmis sem hamlar því að stjórnvöld lækki virðisaukann á olíu og bensín? Er nokkuð ólíklegt að fleiri hópar í þjóðfélaginu rísi upp og hefji mótmæli gagnvar því misrétti sem þeir eru beittir og nægir að nefna sjómenn.
Bílstjórar: Við höldum áfram" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er það svo víst að lækkun á virðisaukaskatti á olíu og bensíni myndi skila sér til neytenda? Get ekki séð að það hafi gerst þegar virðisaukinn á matvörur var lækkaður.
Ársæll Níelsson, 9.4.2008 kl. 12:47
Þó að þessir "vitleysingar" séu í vinnu hjá okkur, einmitt þar liggur hundurinn grafinn. Við kjósendur skiptum engu máli (og eigum helst ekki að tjá okkur) nema hálfum mánuði fyrir kosningar , sem eru á fjögurra ára fresti, utan þess tíma gera þessir "apaheilar" bara það sem þeim sýnist.
Jóhann Elíasson, 9.4.2008 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.