þri. 11.3.2008
Getur nef breyst í brjóst?
Það væri haugalygi að segja annað en að konan mín hefur frábært hugmyndaflug. Í gær var lögð fyrir mig lævís gildra með þessum frægu orðum " ég er með ljótuna " sem mér tókst að verjast fimlega með frægu heyrnarleysi og slapp fyrir horn. Í dag voru notaðir glænýir taktar sem ég hef ekki heyrt áður.
Í sakleysi mínu þegar ég kom heim í dag og var að fá mér kaffi, kemur fárveika eimreiðin mín inn í eldhús (konan) grænni sem aldrei fyrr hnerrandi, með kolstíflað nef og snýtandi sér í klút eins og gamall tóbakskarl. Svo dettur allt í einu upp úr henni, "nefið á mér breytist pottþétt í brjóst". Af fenginni reynslu brást ég frekar rólegur við þessu og spurði ( að drepast úr forvitni ) af hverju segir þú það elskan mín? Á milli hnerra og hóstakasta segir mín, sko ég er orðin svo aum í nefinu að ég er farin að nota græðandi brjóstakrem á nefið á mér.
Ég missti mig alveg úr hlátri, og hugmyndaflugið æddi á stað og stíflan brast. Ég stóð argandi að hlátri fyrir framan mína og leitaði dauðaleit að bólu á nefinu á henni sem ég gæti skýrt geirvörtu. Ég sef í stofunni í nótt...
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:26 | Facebook
Athugasemdir
Þetta minnir mig á konuna sem kom hundfúl til mannsin síns og sagðist vilja fara í brjóstastækkunaraðgerð.
Brjóstastækkunaraðgerð sagði karlinn hálfhissa en án þess að missa úr takt þá segir hann við hana, "blessuð vertu þú þarft þess ekkert" "þú bara nuddar klósettpappír á milli brjóstanna á þér!"
Ha! það virkar ekki neitt! gargar konan á manninn sinn.
Nú það er skrítið, segir hann, það rótvirkaði á rassinn á þér!
Karl Jóhann Guðmundsson (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 00:43
Gott á þig...
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.3.2008 kl. 09:40
Góður Kalli.
Svona getur farið fyrir manni Hafsteinn, frúnni fannst þetta ekkert fyndið
Hallgrímur Guðmundsson, 12.3.2008 kl. 11:25
Svo var það einn daginn að nýráðinn starfsmaður í einhverju ráðuneytinu fékk þá frábæru hugmynd að einfalda kerfið sem notað er við að ákvarða netföng ríkisstarfsmanna, sem geta oft á tíðum verið ansi löng og ómeðfærileg.
Sá nýji fann út kerfi sem er á þá leið að í netfangi viðkomandi starfsmann eigi að nota þrjá fyrstu stafi í fornafni og eftirnafni ríkisstarfsmanna sem og þrjá fyrstu stafi í starfstitli þeirra líka fyrir framan @ merkið.
Þetta vakti mikla lukku hjá flestum en Rúnar Karlsson sérfræðingur sagði umsvifalaust upp!
Karl Jóhann Guðmundsson (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.