Ég var klukkaður !!!!!

Og þá verður maður að gera einsog hinar beljurnar. (Míga)

Ég er fæddur 06.12.62. Sem sagt bogamaður.

Ég er ferlegur með það að segja strax það sem mér dettur í hug og hefur það miklu oftar en ekki verið agalega vandræðalegt, og ekki batnar það þegar ég reyni að bæta fyrir ósköpin með einhverjum orðaútskýringumGrin.

Ég þyki hinn mesti þrákálfur.

Ég þoli ekki undirlægju, óheiðarleika, og hálfkák.

Ég er svakalega óþolinmóður, allir hlutir áttu að gerast í fyrra, ef ég þarf ekki að gera það sjálfurTounge

Ég er stórhættulegur sjálfum mér vegna þess að það er ekki til neitt sem ég óttast.

Ég drakk helvíti mikið, en drekk ekki núna, er að halda uppá tveggja ára edrú afmæli um þessar mundir. en ég reyki alltof mikið og kaffið rennur í lítratali ofaní mig.

Ég er agalega mikið tækjafrík, og að sjálfsögðu kann ég dásamlega vel á allar fjarstýringarnar á heimilinuTounge.

Ég á fimm börn með fyrrverandi konunni minni.

Ég er giftur konu nr. 2 og er æðislega ástfanginn af henni og með henni fékk ég tvær stjúpdætur sem eru algjörar dúllur.

Jæja búinn að míga og læt þetta duga í bili.

kv. Halli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband