Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
sun. 10.8.2008
Það er sagt að lífið
sé ekkert sjálfsagt og sá einfaldi hlutur að vaka aftur eftir góðan nætur svefn sé í raun kraftaverk út af fyrir sig. Um þessa hluti hugsar maður ekki, í það minnsta ekki dags daglega. Svo koma skellirnir og eins og ævinlega eru þetta eins og þrumur úr heiðskýru lofti, enginn er tilbúinn, fyrirvaralaust fellur nákominn fjölskyldumeðlimur frá, við sitjum og spyrjum okkur, af hverju, hvernig gat þetta gerst?
Það dimmir yfir öllu, sólríkur dagur verður sem dimm nótt, partur af mann hverfur og tómarúmið virðist ægistórt sem aldrei verður fyllt að fullu. Þessi sáraeinfaldi hlutur eins og að vakna aftur að morgni breytist í martröð. Svili minn var bráðkvaddur aðfaranótt föstudags rétt fimmtugur að aldri margar spurningar vakna, svörin vantar við þeim öllum og verður sjálfsagt seint eða aldrei svarað.
Ýmislegt hefur dunið á í fjölskyldunni síðustu daga, bæði tengda Pabbi og tengda Mamma voru nýlega lögð inn á sjúkrahús í mjög erfiðar aðgerðir. Svo virðist sem þær hafi tekið með afbrygðum vel og eru þau bæði komin heim aftur. Eins og gerist og gengur eftir svona aðgerðir þá tekur tíma að jafna sig og ná fullum styrk á ný.
Næstu daga og jafnvel vikur verð ég að sinna gömlu hjónunum, það er mér sérstök ánægja að stjana við þau og reyna eftir bestu getu að gera þeim lífið eins auðvelt og skemmtilegt sem verða má.
Það er einhver ró sem færist yfir mig við þetta lag.
Einnig hef ég dálæti á þessu lagi.
Á meðan. Góðar stundir.
Vinir og fjölskylda | Breytt 11.8.2008 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 1.3.2008
Burt með verðtryggingu á lánum.
Þegar stjórnendur bankanna eru farnir að tala svona þá er eitthvað mikið í gangi. Ég held að það ætti að taka verðtryggingu á lánum af áður en svona vitleysa verði framkvæmd. Það er ekki mönnum bjóðandi eða sæmandi að keyra málin svona áfram. Sigurður Einarsson vil að Seðlabankinn hendi verðbólgumarkmiðunum á haugana bönkunum til bjargar. Hvað kostar það okkur sem skuldum og allt verðtryggt?
Mér finnst þetta ekkert flókið, stjórnendur bankanna taki einfaldlega ábyrgð á því brjálæði sem þeir hafa stundað. Fyrir það hafa þeir fengið ofurlaun og þykir alveg sjálfsagt að taka við þeim. Þá þykir mér einnig sjálfsagt að þeir taki ábyrgð á eigin gerðum. Það píndi þá enginn til að haga sér svona. Við þessir meðaljónar eigum ekki að borga þá úr snörunni.
Úr fréttinni Einhvern tímann var jú sagt: Ef þú ert kominn ofan í holu, hættu þá að moka," sagði Sigurður. Þar hitti Sigurður sjálfan sig beint í rassgatið og ætti þessi setning ekki best við hann sjálfan? Fréttina er svo hægt að lesa í heild hérna.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)