Nú verður allt vitlaust

Lögreglan farin að ráðast að mótmælendum með táragasi, ég hef slæma tilfinningu fyrir þessu. Þetta á eftir að enda með ósköpum og spurning hvenær dregin verða upp alvöru vopn og út brjótist skálmöld á Íslandi.

Góðar stundir.


mbl.is Táragasi beitt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Ég er ansi hrædd um viðtalið við Geir og svo þetta eigi að verða okkur dýrkeypt í náinni framtíð en til bóta, kannski, er lengra líður.

Halla Rut , 22.1.2009 kl. 01:06

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

áttu við, hvort að Alþingi verð brent til grunna? eða hvort að mótmælendur mæti vopnaðir til leiks til þess að særa eða drepa?

ég ætla rétt að vona að það sé meira vit í gangi en svo fari. höfum við ekki meiri trú á þjóðinni en að svo fari. er það ekki? 

Fannar frá Rifi, 22.1.2009 kl. 01:08

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég myndi ekki vilja eiga bíl á svæðinu í nótt.

Marinó G. Njálsson, 22.1.2009 kl. 01:15

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég er alveg sammála því Halla að þetta á eftir að reynast okkur dýrkeypt, verður það ekki enn dýrara ef áfram verður haldið á sömu braut með sömu stjórn?

Fannar ég verð að vera alveg hreinskilinn og segja það að mér lýst ekkert orðið á þetta, að hunsa almenning eins og gert er getur á endanum reynst stórhættulegt. Við skulum átta okkur á því að það er ótrúlega stór hópur fólks sem hefur misst allt sitt án þess að hafa gert neitt rangt og hagað sér mjög skynsamlega með sín fjármál.

Fólkið var einfaldlega blekkt, það var rænt og hver sættir sig við það? Ég vona svo sannarlega að þessi mál leysist áður en út brýst skálmöld á Íslandi. Almenningur sættir sig ekki við að þeir sem komu öllu til helvítis gangi um eins og ekkert hafi í skorist. Hvað er í gangi með gjaldeyrinn sem á samkvæmt lögum að skila sér heim? Hann sést í takmörkuðum mæli og fréttir berast af því að Straumur Burðarás sé að gambla með hann.

Er svo einhver hissa á því að það skuli sjóða upp úr? 

Já Fannar ég óttast það að þetta endi með ósköpum því miður en auðvitað vonar maður það besta.

Hallgrímur Guðmundsson, 22.1.2009 kl. 01:24

5 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Rænið þau fyrst, berjið síðan og gazið ef þau eru með múður yfir að hafa verið rænd og ævilöngu skuldafangelsi í kjölfarið...öfgakapítalisminn í hnotskurn.

Georg P Sveinbjörnsson, 22.1.2009 kl. 02:08

6 Smámynd: Halla Rut

Sammála...það sem ég er að meina er kannski svolítið kalt hjá mér en ég tel að kannski þurfi þetta að ganga langt svo við fáum ALVÖRU breytingar. Nú reyna Samfylkingin og VG að koma með sparibreytingar og vil ég ekki að það leysi bara málin. Ég vil að fólkið í landinu gefi þeim engan afslátt heldur.

Vinur minn fékk á sig dóm og þurfti að stunda samfélagsþjónustu fyrir að borga ekki 2 millur í vask sem hann gat ekki því fyrirtæki hans fór á hausinn. Þessir menn ræna milljörðum og ríkisstjórnin segir okkur ekki mega persónugera vandann.

Halla Rut , 22.1.2009 kl. 02:36

7 Smámynd: Sverrir Einarsson

Halla hefðu þessir menn stolið 2 kókosbollum og verið gripnir við að endurselja þær, þá hefðu þeir farið þráðbeint í grjótið í einangrun (til að spilla ekki rannsóknarhagsmunum) og fengið að dúsa þar, ekki bara meðan málið væri rannsakað, heldur fram yfir dómsuppkvaðningu.

Ef þú stelur littlu þá ferðu í grjótið, ef þú stelur nógu mikklu þá ferðu í Stjórnarráðið. Svo einfalt er það.

Sverrir Einarsson, 22.1.2009 kl. 02:43

8 Smámynd: Halla Rut

Hvað ætli maður þurfi að vera ríkur til að fá svona "sendiráðspassa" hjá ríkinu og þá hafin yfir öll lög?

Halla Rut , 22.1.2009 kl. 02:49

9 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Frekar mikið ríkur, þá aðeins færðu sérmeðferð...og "innmúraðir".

Georg P Sveinbjörnsson, 22.1.2009 kl. 03:20

10 Smámynd: Víðir Benediktsson

Já, þetta lítur ekki vel út.

Víðir Benediktsson, 22.1.2009 kl. 05:51

11 Smámynd: Óskar Arnórsson

..nú fer fólk að mæta á mótmælafundi með skotvopn! Lögreglan er algjörlega búin að tapa sér... Geir Geðbilaða sem ætti að skilja þetta, er eins og álfur út úr hól. Hann þráast og staglast á frösum sem eru úr öllu samhengi við það sem allir sjá.

Það gæti einhver duglegur lögfróður maður búið til kæru á þennan mann  (landráð) og mér sýnist vera einfalt að færa rök fyrir því.

Óskar Arnórsson, 22.1.2009 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband