Sverðin verða dregin á loft.

Fyrst þarf að tryggja öfluga forustu sem talar máli allra, jafnt stórra sem smáa, jafnt krókakarla semKappar lítilmaganna innan Líú. Rödd sem fer ekki í manngreiningarálit eftir efnahag og kvótastöðu. Það er komið að því að láta verkin tala.

Þeir sem ég hef ekki talað við og sjá þessa færslu og vilja fræðast um málið, geta haft samband við mig. Netfangið mitt er gefið upp á síðunni og einnig símanúmerið mitt, nú þeir sem ekki hafa samband sjá um hvað málið snýst í fréttum á Stöð 2 annað kvöld.

Góðar stundir. 


mbl.is Þingnefnd fjallar um álit mannréttindanefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Nú líst mér á þig, nú er hugur í þér, það hefur tekið sig upp gamall ungmennafélagsandi..

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 16.1.2008 kl. 20:30

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það var aldrei neitt djúpt á honum. Eigum við nokkuð að láta trampa á okkur lengur? Ég segi nei og snýst til varnar. Og trúðu mér ég er fyrrverandi heimsklassa markmaður (held ég), og er þar af leiðandi með svarta beltið í varnaraðgerðum

Hallgrímur Guðmundsson, 16.1.2008 kl. 20:53

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Maður yrði nú sennilega bara troðinn undir ef maður lenti nærri þegar þessi stýfla brestur..

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 17.1.2008 kl. 15:10

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Þér er alveg óhætt félagi Öðru máli gegnir um þá sem við snúum okkur að með fullum þunga. Það er ekkert smá verkefni maður sem fyrir höndum er, en eins og ég hef alltaf sagt, það er ekki til það verkefni sem ekki má leysa. Þau eru bara mismunandi að stærð...

Hallgrímur Guðmundsson, 17.1.2008 kl. 19:23

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Halli þú hefur góðann málstað. Ég heiti á landvættirnar að veita þér þá liðveislu sem dugir til sigurs.

Sigurður Þórðarson, 17.1.2008 kl. 23:35

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Mikið rétt Halli, haltu bara strikinu, það er málið, það miðar þó hægt fari...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 18.1.2008 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband